BorderLayoutBoxedLayoutOpenLayout Small width layout Medium width layout Maximum width layout Maximum text Medium text Small text
MYNDBÖND

Atvinna


Velferð

 

Stefnuskrá Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir kosningar 2010

Ný Kópavogsbrú - nýjar leiðir í atvinnu og húsnæðismálum bæjarfélagsins.

   
   

 

Bloggarar Suðvestur Lágmarka
Gunnar Axel Axelsson
Skrum í morgunsárið
Gunnar Axel Axelsson
Hitaveitusagan öll
Gunnar Axel Axelsson
Fámennt lýðræði
Árni Páll Árnason
Fjölbreytt atvinnustefna kallar á evru
Elfur Logadóttir
Ég er í liðinu sem sigraði Gunnar
Elfur Logadóttir
Sínum augum lítur hver (á) silfrið
Þórunn Sveinbjarnardóttir
Í tilefni dagsins: Blöndalskenningin
Þórunn Sveinbjarnardóttir
Aðildarviðræður við ESB
Elfur Logadóttir
Brú þarf að vera heil til að vera nothæf
Magnús Orri Schram
Bankaskattur

Kæru Kópavogsbúar Kæru Kópavogsbúar

Í kosningabaráttunni sem senn er á enda hefur Samfylkingin í Kópavogi lagt áherslu á málefnalega umræðu um framtíð Kópavogs, eins og við sjáum hana öl... meira ...

Vatnsendamálið Vatnsendamálið

Krafa landeigenda á Vatnsenda um 14 milljarða greiðslu frá Kópavogsbæ, sem fjallað var um í fréttum Sjónvarps um helgina, er út úr öllu korti. meira ...

Opnum Kópavog Opnum Kópavog

Flokkarnir ættu að starfa saman að sem flestum málum Mér finnst allt of mikið bera á sandkassaleik og drullukasti í pólitíkinni.  meira ...

Nú er þörf á breytingum í bæjarstjórn Nú er þörf á breytingum í bæjarstjórn

Það er með ólíkindum hvernig mál hafa þróast hér í Kópavogi á kjörtímabilinu og við höfum þurft að standa fast í lappirnar. meira ...

Pause
Verðum að styðja barnafjölskyldurnar
Hrun efnahagskerfisins með launaskerðingu, stórhækkuðu vöruverði, margföldun húsnæðis- og bílalána o...meira
Krafa um breytingar
Íslenska þjóðin hefur upplifað rússíbanareið undanfarin tvö ár. Afleiðingarnar fyrir sálartetrið eru...meira
Byggt á styrkleikum í bæ tækifæranna
Kópavogur er bær tækifæra. Tækifæra sem eru að stórum hluta vannýtt. Fyrsta skrefið til að ná árangr...meira
Það verður að huga að velferð barna
Margrét Júlía Rafnsdóttir og Tjörvi Dýrfjörð eru með hjartað á réttum stað. meira

Samfylkingin var stofnuð eins og kunnugt er árið 1998 eftir að Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur, Kvennalisti og Þjóðvaki sameinuðust undir merkjum Samfylkingarinnar.

Skömmu síðar var Samfylkingarfélagið í Kópavogi stofnað.

Félagsmiðstöð Samfylkingarfélagsins í Kópavogi er í Hamraborg 11, 3. hæð.

Haldnir eru félagsfundir öll mánudagskvöld kl. 20:30. Allir, sem vilja taka þátt í skemmtilegu pólitísku starfi, taka ábyrgð og vilja koma góðum hlutum í verk ættu að koma og taka þátt í umræðunum á mánudögum. Verið hjartanlega velkomin!

 

Ýr Gunnlaugsdóttir, formaður, yrg@xskopavogur.is

Kristín Sævarsdóttir, varaformaður, kristin@xskopavogur.is
Þorsteinn Ingimarsson, gjaldkeri, thorsteinn@xskopavogur.is
Hjördís Erlingsdóttir, spjaldskrárritari, hjordis@xskopavogur.is
Erlendur Geirdal, ritari, erlendur@xskopavogur.is

Sigurður Grétarsson, varastjórn, siggret@xskopavogur.is
Guðrún Jóna Jónsdóttir, varastjórn, gudrunjj@xskopavogur.is

 Lög Samfylkingarinnar í Kópavogi

1. gr.
Nafn félagsins er Samfylkingin í Kópavogi. Heimili þess og varnarþing er í Kópavogi. Félagið er aðili að Samfylkingunni á landsvísu.

2. gr.
Tilgangur félagsins er að vera vettvangur umræðna um bæjarmál í Kópavogi og um landsmál á vettvangi Samfylkingarinnar í anda frelsis, jafnréttis, kvenfrelsis og
félagshyggju.

3. gr.
Meginmarkmið félagsins eru:
• að hefja sjónarmið jafnaðar, kvenfrelsis og félagshyggju til vegs í samfélaginu.
• standa að virkri umræðu um þjóðmál og málefni bæjarfélagsins.
• að standa fyrir framboði til bæjarstjórnar Kópavogs og styðja framboð hennar til
Alþingis.

4. gr.
Félagar geta þeir verið sem vilja starfa að markmiðum félagsins og náð hafa 16 ára aldri. Félagar teljast þeir sem greiða árgjald í samþykkt við samþykkt aðalfundar. Stjórn er heimilt að taka fólk af félagaskrá skuldi það félagsgjöld í meira en þrjú ár.

5. gr.
Stjórn félagsins skal vera skipuð fimm fulltrúum og tveimur til vara. Skal hún kjörin á aðalfundi til eins árs í senn. Formaður skal kjörinn sérstaklega, en að öðru leyti skiptir
stjórnin með sér verkum og velur úr sínum hópi varaformann, gjaldkera og ritara. Gjaldkeri skal jafnan vera formaður fjáröflunarnefndar félagsins. Allir félagar Samfylkingarinnar í Kópavogi hafa kosningarétt og kjörgengi við kosningar til stjórnar og annarra embætta félagsins.
Á aðalfundi ár hvert skal kjósa þriggja manna uppstillingarnefnd vegna stjórnarkjörs og skal hún gera tillögu um stjórn til aðalfundar næsta árs á eftir.
Kosið skal persónubundinni leynilegri kosningu skv. tillögu uppstillingarnefndar og uppástungum fundarmanna. Komi ekki fram fleiri tillögur en sem nemur einni til formanns, fjórum til stjórnar og tveimur til vara telst stjórn félagsins sjálfkjörin.

6. gr.
Stjórnarfundir teljast löglegir ef þeir eru boðaðir með minnst sólarhrings fyrirvara og meirihluti stjórnar er viðstaddur. Varamenn skal jafnan boða á stjórnarfundi og taka þeir sæti í forföllum aðalmanna. Varastjórn hefur málfrelsi og tillögurétt á stjórnarfundum en er eigi heimilt að greiða atkvæði um þau mál sem til afgreiðslu eru.
Stjórn félagsins skal annast um að haldið sé félagaskrá og skal félagaskrá eins og hún liggur fyrir einum mánuði fyrir aðalfund teljast rétt kjörskrá vegna allra kosninga.

7. gr.
Fyrir hvert starfsár skal nýkjörin stjórn gera fjárhagsáætlun, sem skal byggð á þeim samþykktum sem aðalfundur setur um útgjöld og tekjur og fjárhagsstöðu samkvæmt ársreikningi. Áætlanir þessar skulu liggja fyrir einum mánuði eftir að ný stjórn tekur við og kynnt á félagsfundi sem sérstaklega auglýstur dagskrárliður. Gera skal sérstaka áætlun um stór einstök verkefni eins og kosningastarf og skal hún vera hluti af heildaráætlun félagsins.

8. gr.
Meirihluti stjórnar skulbindur félagið með bókaðri ákvörðun á stjórnarfundi. Gjaldkeri er prókúruhafi á reikninga félagsins og skal hann árita alla reikninga og önnur útgjöld
félagsins áður en greiðsla fer fram. Samþykki gjaldkeri ekki ráðstöfun stjórnar skal að kröfu hans þegar í stað boðað til félagsfundar og ákvörðun stjórnar borin undir hann. Tekur hún þá ekki gildi fyrr en að fengnu samþykki þess fundar.

9 .gr.
Stjórnin boðar til félagsfunda og skulu þeir boðaðir með minnst þriggja daga fyrirvara. Stjórn er skylt að boða til félagsfundar ef minnst 30 félagsmenn senda um það skriflegt
erindi til stjórnar og tilgreina erindið. Félagsfundir fara með æðsta vald á málefnum félagsins milli aðalfunda.

10. gr.
Aðalfund skal halda eigi síðar en 30. maí ár hvert og skal hann boðaður með viku fyrirvara. Fundinn skal boða í fréttabréfi Samfylkingarinnar í Kópavogi og með einni
auglýsingu í blaði sem borið er út í heimili í Kópavogi. Liggi mikið á skal stjórn félagsins heimilt að boða til aukaaðalfundar.

Fastir liðir aðalfundar skulu vera:
1. Skýrsla stjórnar og nefnda eftir því sem við á.
2. Lagðir fram reikningar.
3. Lagabreytingar, hafi tillögur borist og verið kynntar.
4. Kosning formanns.
5. Kosning fjögurra aðalmanna í stjórn og tveggja til vara.
6. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
7. Kosning þriggja manna uppstillingarnefndar.
8. Önnur mál.

11. gr.
Félagið skal að fengnu samþykki félagsfundar bjóða fram til bæjarstjórnarkosninga í Kópavogi og styðja framboð Samfylkingarinnar til Alþingis. Efnt skal til prófkjörs eða
kjörnefnd falið að móta tillögur um framboðslista til bæjarstjórnar eftir því sem félagsfundur ákveður.
Kjörnefnd gengur frá tillögum um framboðslista sem lagður er fyrir félagsfund til samþykktar. Kjörnefnd skal skipuð af félagsfundi Samfylkingarinnar í Kópavogi í síðasta lagi sex mánuðum fyrir kosningar.


12. gr.
Á aðalfundi eða almennum félagsfundi skal kjósa fulltrúa félagsins á landsfund og kjördæmisráð Samfylkingarinnar.

13. gr.
Við skipan í nefndir, ráð og stórnir á vegum Samfylkingarinnar í Kópavogi skal leitast við að hlutföll kynja séu sem jöfnust.

14. gr.
Á vegum félagsins skulu haldnir reglulegir bæjarmálafundir á meðan bæjarstjórn starfar. Umsjón með fundunum er í höndum bæjarmálaráðs og skulu þeir vera opnir öllum bæjarbúum. Bæjarmálaráð félagsins er skipað stjórn og varastjórn félagsins, bæjarfulltrúum, varabæjarfulltrúum og öllum fulltrúum Samfylkingarinnar í nefndum á vegum
bæjarins. Bæjarmálaráð kýs sér formann og varaformann úr sínum hópi og skulu þau stjórna fundum ráðsins. Bæjarstjórnarfulltrúar Samfylkingarinnar í Kópavogi skulu kynna í bæjarmálaráði tillögu sína að skipan fulltrúa í nefndir, stjórnir og ráð á vegum bæjarins og leita álits ráðsins þar um.

15. gr.
Félaginu verður einungis slitið ef tillaga þess efnis berst stjórn félagsins með eins mánaðar fyrirvara fyrir aðalfund. Skal hún þá kynnt félagsmönnum með a.m.k. hálfs
mánaðar fyrirvara fyrir næsta aðalfund þess. Til þess að slíta félaginu þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða á tveimur fundum og skal sá fyrri þeirra vera aðalfundur. Eigi skal
líða skemmri tími en sex vikur milli funda og eigi lengri en þrír mánuðir.

16. gr.
Lögum félagsins má aðeins breyta á aðalfundi enda sé rétt til hans boðað. Tillagna að lagabreytingum skal getið í aðalfundarboði.

17. gr.
Stjórn félagsins hefur heimild til að innheimta félagsgjald af félögum sem ákveðist á aðalfundi. Félagsgjaldið er m.a. innheimt til að greiða flokksskatt á landsfundi
Samfylkingarinnar.

 Atvinnu- og upplýsinganefnd

Fer með atvinnumál, markaðsmál og mál er varða upplýsingatækni hjá bænum. Sér m.a. um sýningar í Fífunni.

Byggingarnefnd

Bæjarráð

Bæjarráð fundar vikulega kl. 12:00 á fimmtudögum.

 

Ferlinefnd

 

Félagsmálaráð

Félagsmálaráð fer með félagsmál s.s. barnavernd, málefni aldraðra og öryrkja. Ráðið fundar tvisvar í mánuði. Okkar fólk í félagsmálaráði er:

 

Hafnarstjórn

Okkar fólk í hafnarstjórn er:

 

Heilbrigðisnefnd Hafnarfj. og Kópavogssvæðis

 

Húsnæðisnefnd

 

Íþrótta- og tómstundaráð

 

Jafnréttisnefnd

 

Kjaranefnd

 

Kjörstjórn

 

Leikskólanefnd

Leikskólanefnd fjallar um málefni leikskólanna í bænum. Hún fundar tvisvar í mánuði. Fulltrúar Samfylkingarinnar í nefndinni eru:

 

Lista- og menningarráð

 

Skipulagsnefnd

Skipulagsnefnd fjallar um skipulagsmál í bænum. Hún fundar aðra hverja viku.

 

Skoðunarmaður reikninga bæjarins

 

Skólanefnd

Skólanefnd fjallar um málefni grunnskólanna í bænum. Hún fundar á tveggja vikna fresti.

 

Skólanefnd MK

 

Stjórn Héraðsskjalasafns

 

Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar

 

Stjórn Tónlistarhúss

 

Stjórn Tónlistarskóla Kópavogs

 

Stjórn Tónminjasafns

 

Umferðarnefnd

 

Umhverfisráð

 

Vinabæjanefnd

 

 



Höfundarréttur (c) 2010 Samfylkingin Samfylkingin - Hallveigarstíg 1- 101 Reykjavík - sími 414 2200 - samfylking@samfylking.is