BorderLayoutBoxedLayoutOpenLayout Small width layout Medium width layout Maximum width layout Maximum text Medium text Small text

 

Bloggarar í Reykjavik
Mörður Árnason
Velheyrandi
Björgvin Valur Guðmundsson
Sérstaðan fundin
Björgvin Valur Guðmundsson
Sælla er að þiggja en gefa
Björgvin Valur Guðmundsson
Ósk
Valgerður Bjarnadóttir
Er umræðan um Evrópu karp ?
Dofri Hermannsson
Hægt að spara 150-200 þ á ári
Björgvin Valur Guðmundsson
Vestmannaeyjar og ég
Björgvin Valur Guðmundsson
Handhafar frelsisverðlauna Kjartans Gunnarssonar
Bjarni Karlsson
Verjumst ekki
Mörður Árnason
Atkvæði um ESB-viðræðurnar
Helga Vala Helgadóttir
glóruleysi við Vesturbæjarskóla.
Mörður Árnason
Traustur vinur
Bjarni Karlsson
Börnin dæma kirkjuna
Helga Vala Helgadóttir
Tilkynningarskyldan gengur framar ákvæðum laga eða siðareglna…
Hjálmar Sveinsson
Lífsgæði hafnarinnar
 

Rannsóknarskýrslan

 


Afmælisrit SffR

Taktu þátt í hugmyndasmiðju SffR Taktu þátt í hugmyndasmiðju SffR

Á miðvkudagskvöld verður haldin hugmyndasmiðja á Hallveigarstíg þar sem leitast verður við að svara spurningum umbótanefndar. meira ...

Allir með til Vestmannaeyja 28. ágúst! Allir með til Vestmannaeyja 28. ágúst!

Hin sívinsæla sumarferð Samfylkingarinnar verður að þessu sinni farin til Vestmannaeyja laugardaginn 28. ágúst. Brottför kl. 8.00 frá BSÍ. meira ...

Yfir 70% borgarbúa gleðjast yfir samstarfinu Yfir 70% borgarbúa gleðjast yfir samstarfinu

Hveitibrauðsdagar meiri hluta Besta flokksins og Samfylkingarinnar í borgarstjórn eru rétt hafnir en borgarbúar hafa þegar tekið Jóni Gnarr borgarstjó... meira ...

Allskonar allskonar fyrir Reykjavík Allskonar allskonar fyrir Reykjavík

Jón Gnarr var kjörinn borgarstjóri á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar þriðjudqaginn 15. júní. Dagur B. Eggertsson verður formaður borgarráðs og stað... meira ...

 
 
 

  

Samfylkingarfélagið í Reykjavík

 
Hallveigarstíg 1  •  101 Reykjavík
Símbréf 414 2201  •  Sími 414 2207
Heimasíða sffr.is  •  Netfang reykjavik@samfylking.is
 

                                      

 
Formaður
Kjartan Valgarðsson
 
Varaformaður
Ingibjörg Stefánsdóttir
 
Ritari
Bjarni Þór Sigurðsson
 
Gjaldkeri
Þórhallur Vilhjálmsson
 
Meðstjórnendur
Anna Kristjánsdóttir
Helga Vala Helgadóttir
Stefán Benediktsson
 
Varamenn
Arndís Anna K. Gunnarsdóttir
Sigurður Kaiser
Skúli Helgason
 

  

Lög Samfylkingarfélagsins í Reykjavík

 

1. grein

Félagið heitir Samfylkingarfélagið í Reykjavík. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

2. grein

Tilgangur félagsins er að vera vettvangur einstaklinga sem standa að Samfylkingunni í Reykjavík, til umræðna og ályktana um félagshyggju, jafnaðarstefnu og kvenfrelsi. Jafnframt skal félagið vera bakhjarl og samráðsaðili kjörinna fulltrúa og frambjóðenda til Alþingis og sveitastjórna á vegum Samfylkingarinnar í Reykjavík.

3. grein

Allir íbúar Reykjavíkur eldri en 16 ára sem ekki eiga aðild að öðrum stjórnmálaflokki geta verið félagsmenn. Enginn félagsmaður getur haft nema einfaldan atkvæðisrétt í félaginu eða greitt atkvæði í umboði annarra. Félagsmaður getur verið félagsmaður í öðru aðildarfélagi Samfylkingarinnar en þegar kemur að kosningum á landsfund eða í fulltrúaráð velur félaginn í hvaða félagi hann vill greiða atkvæði til að koma í veg fyrir að hann hafi tvöfaldan atkvæðisrétt. Til að eiga atkvæðisrétt í SffR skal hann tilkynna stjórn val sitt fyrir upphaf kjörfundarins. 

4. grein

Stjórn félagsins skal skipuð 7 aðalmönnum og 5 til vara. Í aðalstjórn skulu sitja ásamt formanni, varaformaður, ritari, gjaldkeri og 3 meðstjórnendur. Formaður skal ekki sitja lengur en í 3 starfsár í senn. Varastjórn skal kjörin í einu lagi, og telst sá fyrsti varamaður, sem flest atkvæði hlýtur eða er efstur á lista sé varastjórn einróma kjörin og svo koll af kolli. Stjórnarfund skal boða með minnst tveggja sólarhringa fyrirvara nema allir stjórnarmenn samþykki styttri frest og eiga varamenn jafnan rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti en eigi atkvæðisrétti, nema viðkomandi aðalmaður sé fjarverandi. Stjórnarfundur telst löglegur hafi verið löglega til hans boðað og minnst 4 stjórnarmenn séu mættir. Einfaldur meirihluti ræður komi til atkvæðagreiðslu á stjórnarfundum. Óheimilt er að efna til fjárhagslegra skuldbindinga á vegum félagsins nema stjórnarsamþykkt liggi fyrir.

5. grein

Stjórn félagsins skal boða til allra funda sem haldnir eru á vegum Samfylkingarfélagsins í Reykjavík. Fundi skal boða með minnst fimm daga fyrirvara. Til aðalfundar skal þó boða með minnst þriggja vikna fyrirvara. Fundir skulu boðaðir bréflega, í rafrænum pósti og/eða með auglýsingum í fjölmiðlum. Stjórninni er skylt að boða til fundar ef minnst 30 skráðir félagsmenn sbr. 3. gr. óska þess skriflega og tilgreina fundarefni. Stjórnin getur einnig haldið opna umræðufundi sem auglýstir eru á heimasíðu félagsins, með tölvupósti og með dagblaðaauglýsingum.

6. grein

Aðalfundur félagsins skal haldinn fyrir 1. mars ár hvert. Aðalfundur skal boðaður með þriggja vikna fyrirvara en dagskrá skal send út með minnst 5 daga fyrirvara og er fundurinn lögmætur sé löglega til hans boðað. Reikningsár félagsins er almanaksárið. Fastir dagskrárliðir aðalfundar skulu vera: Skýrsla stjórnar félagsins Endurskoðaðir ársreikningar félagsins Lagabreytingar Ákvörðun um félagsgjald Kosning formanns Kosning annarra í stjórn Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga félagsins Kosning í nefndir a) Uppstillingarnefnd b) Aðrar nefdir sem aðalfundur ákveður. Önnur mál.

7. grein

Tillögur til lagabreytingar þurfa að hafa borist stjórn 2 vikum fyrir boðaðan aðalfund. Lagabreytingartillögur skulu sendar út með öðrum fundargögnum minnst viku fyrir fund.Tillaga að lagabreytingum telst samþykkt fái hún 2/3 hluta greiddra atkvæða.

8. grein

Á aðalfundi skal kjósa þriggja manna uppstillingarnefnd og einn til vara. Hlutverk nefndarinnar er að leggja fram tillögur um frambjóðendur til kjörs formanns, stjórnar, varastjórnar og annarra starfa fyrir féalgið sem kosmið er um á aðalfundi. Tillögur uppstillingarnefndar um stjórn félagsins skulu liggja fyrir á skrifstofu félagsins minnst 5 sólarhringum fyrir aðalfund félagsins. Aðrar tillögur skulu berast skrifstofu félagsins minnst 2 sólarhringum fyrir boðaðan aðalfund.

9. grein

Félaginu verður því aðeins slitið að tillaga þess efnis berist stjórn félagsins undirrituð af minnst 30 félagsmönnum. Þannig fram komin tillaga skal takast til afgreiðslu á tveimur löglega boðuðum fundum í félaginu og þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða á hvorum fundi um sig til þess að tillagan teljist samþykkt. Ekki skal líða lengri tími milli funda en sex vikur.


Samþykkt á aðalfundi Samfylkingarfélagsins í Reykjavík 29. janúar 2005 og með breytingum á aðalfundi 3. mars 2010.

 

  

Hverfafélög í Reykjavík

 

Samfylkingarfélagið í Árbæ

Gunnar Kristinsson, formaður
 
 

 

Samfylkingarfélagið í Breiðholti

Lárus Rögnvaldur Haraldsson, formaður
 
 

 

Samfylkingarfélagið í Grafarvogi

Guðbrandur Guðmundsson, formaður
 
 

 

Samfylkingarfélagið í Háaleiti og Bústöðum

Hörður J. Oddfríðarson, formaður
 
 
 

Samfylkingarfélagið í Hlíðum

Stefán Benediktsson, formaður
 
 

 

Samfylkingarfélagið í Laugardal

Leifur Björnsson, formaður
 
 

 

Samfylkingarfélagið í Miðborg

Hjálmar Sveinsson formaður
 

 

Samfylkingarfélagið í Vesturbæ

Heiða Björg Pálmadóttir, formaður
Netfang hbp@hive.is
 

 

Samfylkingarfélagið á Kjalarnesi

Hverfið mitt Kjalarnes

 

 

 

Hallveig - ungir jafnaðarmenn í Reykjavík

 

Pétur Markan, formaður

Heimasíða hallveig.is

 

 

60+ í Reykjavík

 

Stjórn

Ingibjörg Guðmundsdóttir, formaður
 
 Hörður Bergmann
 
Iðunn Steinsdóttir
 
Omar Awad
 
Stefán Benediktsson

 

 

 

Fulltrúaráð Samfylkingarinnar í Reykjavík

 
 
Stjórn 

Þorbjörn Guðmundsson, formaður

Heiða Björg Pálmadóttir, varaformaður

Sigurður Kaiser, ritari

Hákon Óli Guðmundsson, gjaldkeri

Katrín Theódórsdóttir, meðstjórnandi

Ásgeir Beinteinsson, varamaður

Ingibjörg Stefánsdóttir, varamaður

Sigurður Ásbjörnsson, varamaður 

 



Höfundarréttur (c) 2010 Samfylkingin Samfylkingin - Hallveigarstíg 1- 101 Reykjavík - sími 414 2200 - samfylking@samfylking.is